Verkefnin

okkar

Við höfum hjálpað fyrirtækjum í ýmsum atvinnugreinum að ná markmiðum sínum og við erum spennt að hjálpa þér að gera slíkt hið sama.

Efling

Notendamiðaður vefur fyrir Eflingu

Efling leitaði til Klick með það að markmiði að færa vefsíðuna í nýjan búning sem samræmist uppfærðri ásýnd félagsins. Mikil vinna hafði þegar farið í endurnýjun á vörumerki, ásamt nýju útliti á skrifstofu og í kynningarefni, og því var mikilvægt að vefsíðan fylgdi þeirri þróun og myndaði heildstæða upplifun.

Torfhús

Stafræn upplifun sem endurspeglar vörumerkið

Torfhús Retreat leitaði til Klick með það markmið að skapa stafræna upplifun sem endurspeglar gæði og sérstöðu staðarins. Vefsíðan þurfti að miðla vandaðari upplifun á sama tíma og hún styddi við bókanir í gegnum vefinn.

Skátarnir

Notendavæn vefsíða sem styður við starf & miðlun upplýsinga

Bandalag íslenskra skáta leitaði til Klick með það markmið að byggja upp nýja vefsíðu sem væri bæði notendavæn og einföld í umsjón. Nýja vefsíðan gegnir mikilvægu hlutverki við miðlun upplýsinga í starfi skátahreyfingarinnar ásamt því að gera börnum, foreldrum,og öðrum áhugasömum það auðveldara að kynna sér skátastarfið og taka þátt.

Notendavæn vfsíða sem styður við starf & miðlun upplýsinga

Bandalag íslenskra skáta leitaði til Klick með það markmið að byggja upp nýja vefsíðu sem væri bæði notendavæn og einföld í umsjón. Nýja vefsíðan gegnir mikilvægu hlutverki við miðlun upplýsinga í starfi skátahreyfingarinnar ásamt því að gera börnum, foreldrum,og öðrum áhugasömum það auðveldara að kynna sér skátastarfið og taka þátt.

Vala Adventure

Vörumerki og stafrænn sýnileiki byggður frá grunni

Vala Adventure er nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á sérvaldar og persónulegar upplifanir fyrir erlenda ferðamenn. Sem nýr aðili á samkeppnismarkaði var lykilatriði að byggja upp skýrt og faglegt vörumerki sem miðlar gæðum, trausti og eftirminnilegri upplifun.

Glassriver

Vefsíða sem setur vörumerkið & verkin í rétt samhengi

Glassriver er eitt af leiðandi framleiðslufyrirtækjum landsins á sviði sjónvarps- og kvikmyndagerðar. Markmiðið með verkefninu var að hanna og þróa notendavæna vefsíðu sem væri einföld í viðhaldi, styddi við markaðs- og söluaðgerðir fyrirtækisins og myndi á sama tíma sýna Glassriver sem sterkt og traust vörumerki.

Earth Lagoon

Vefsíða byggð frá grunni fyrir nýtt vörumerki

Earth Lagoon Mývatn er eitt þekktasta baðlón landsins sem hefur nýlega farið í gegnum heildstæða endurmörkun vörumerkisins. Markmiðið var að byggja upp nýja vefsíðu frá grunni sem endurspeglar nýja ímynd staðarins á skýran og faglegan hátt, á sama tíma og hún er einföld í notkun og auðveld í umsjón.

GR Golf

Nýr & skilvirkur vefur fyrir GR

Golfklúbbur Reykjavíkur leitaði til Klick og þurfti að fá gerða nýja og notendavænni vefsíðu. Starfsfólk klúbbsins átti í erfiðleikum með að viðhalda gömlu síðunni sjálf, allar breytingar kröfðust tæknilegrar aðstoðar og tóku tíma. Þar að auki var gamla síðan þunglamaleg í notkun, erfitt var að finna ákveðnar upplýsingar og upplýsingaflæðið til notenda var ómarkvisst.

Verkefnalistinn

Lifandi mælaborð fyrir bæjarbúa

Borgarstjórn Reykjavíkur leitaði til Klick með skýrt markmið: að gera verkefnalista stjórnarsáttmálans aðgengilegan og gagnsæjan fyrir almenning. Þörfin var fyrir lifandi veflausn sem sýnir stöðu verkefna yfir tíma og gefur borgarbúum skýra mynd af framvindu.

Vök Baths

Nútímaleg & lifandi upplifun á netinu

Vök Baths leitaði til Klick með þrjú skýr markmið: að fá fulla stjórn yfir eigin heimasíðu, bæta upplifun gesta og uppfæra útlit síðunnar þannig að það endurspeglaði betur það einstaka umhverfi og upplifun sem staðurinn hefur upp á að bjóða.

Heyrnartækni

Nýr & skýr vefur

Heyrnartækni leitaði til Klick með það verkefni að hanna nútímalega og notendavæna vefsíðu sem endurspeglar sérfræðiþekkingu og trausta ímynd fyrirtækisins. Vefsíðan skyldi hönnuð með það að markmiði að skapa vettvang fyrir skýr samskipti við viðskiptavini, gera allar upplýsingar aðgengilegar og byggja upp ásýnd Heyrnartækni á stafrænum vettvangi til lengri tíma.

Grænir skátar

Upplýsandi þjónustuvefur

Grænir skátar leituðu til Klick með það verkefni að endurhanna vefsíðuna frá grunni og skapa þannig stílhreinan og fræðandi upplýsingavef sem miðlar þjónustu fyrirtækisins á markvissari hátt. Nýi vefurinn þurfti jafnframt að styðja við fyrirspurnarform; draga fram jákvæð áhrif starfseminnar á umhverfið áður en annasöm sumarvertíðin gengi í garð. Jafnframt þurfti vefsíðan að endurspegla uppfærða vörumerkjaímynd fyrirtækisins og síðast en ekki síst var mikilvægt að starfsfólkið gæti sjálft haldið vefnum uppfærðum án þess að þurfa tæknilega sérþekkingu.

FB

Notendavænn vefur sem einfaldar hlutina

Skólinn leitaði til Klick með það verkefni að endurskipuleggja og endurhanna vefsíðuna þannig að auðveldara væri fyrir ólíka hópa notenda hennar að finna þær upplýsingar sem leitað er að. Helsta áskorunin fólst í umfangi vefsins og miklu magni upplýsinga, sem hafði gert notendum erfitt fyrir að átta sig á því hvar þær upplýsingar væri að finna sem leitað var að.

Lava Resort

Nýr vefur sem einfaldar upplifun gesta

Nýja vefsíðan var sett upp í Duda og í stað einnar langrar forsíðu var efninu skipt niður á aðskildar undirsíður sem gera vefinn skýrari og auðveldari í notkun. Nú eru meðal annars sérstakar síður fyrir gistinguna, veitingastaðinn, útisvæðið, lónið og sánuna, áhugaverða staði í nágrenninu og ýmislegt fleira. Einnig er auðvelt að bæta við nýju efni og þróa vefinn áfram eftir því sem starfsemin vex.

Vala Adventure

Vörumerki og stafrænn sýnileiki byggður frá grunni

Vala Adventure er nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á sérvaldar og persónulegar upplifanir fyrir erlenda ferðamenn. Sem nýr aðili á samkeppnismarkaði var lykilatriði að byggja upp skýrt og faglegt vörumerki sem miðlar gæðum, trausti og eftirminnilegri upplifun.

Glassriver

Vefsíða sem setur vörumerkið & verkin í rétt samhengi

Glassriver er eitt af leiðandi framleiðslufyrirtækjum landsins á sviði sjónvarps- og kvikmyndagerðar.  Markmiðið með verkefninu var að hanna og þróa notendavæna vefsíðu sem væri einföld í viðhaldi, styddi við markaðs- og söluaðgerðir fyrirtækisins og myndi á sama tíma sýna Glassriver sem sterkt og traust vörumerki.

Earth Lagoon

Vefsíða byggð frá grunni fyrir nýtt vörumerki

Earth Lagoon Mývatn er eitt þekktasta baðlón landsins sem hefur nýlega farið í gegnum heildstæða endurmörkun vörumerkisins. Markmiðið var að byggja upp nýja vefsíðu frá grunni sem endurspeglar nýja ímynd staðarins á skýran og faglegan hátt, á sama tíma og hún er einföld í notkun og auðveld í umsjón.

GR Golf

Nýr og skilvirkur vefur fyrir GR

Golfklúbbur Reykjavíkur leitaði til Klick og þurfti að fá gerða nýja og notendavænni vefsíðu. Starfsfólk klúbbsins átti í erfiðleikum með að viðhalda gömlu síðunni sjálf, allar breytingar kröfðust tæknilegrar aðstoðar og tóku tíma. Þar að auki var gamla síðan þunglamaleg í notkun, erfitt var að finna ákveðnar upplýsingar og upplýsingaflæðið til notenda var ómarkvisst.

Verkefnalistinn

Lifandi mælaborð fyrir bæjarbúa

Borgarstjórn Reykjavíkur leitaði til Klick með skýrt markmið: að gera verkefnalista stjórnarsáttmálans aðgengilegan og gagnsæjan fyrir almenning. Þörfin var fyrir lifandi veflausn sem sýnir stöðu verkefna yfir tíma og gefur borgarbúum skýra mynd af framvindu.

Vök baths

Nútímaleg og lifandi upplifun á netinu