Reykjavík, Ísland

Leikir sem
safna viðskiptavinum.

Jóladagatal, lukkuhjól og fleiri markaðsleikir í útliti fyrirtækisins. Fólk spilar, skráir sig á póstlistann og kemur aftur.

Fólk vill frekar spila en fylla út form. Leikir sem safna netföngum og fá fólk til að koma aftur.

">

Við setjum leikinn upp í útliti fyrirtækisins, tengjum hann við póstlistann og sjáum um vinninga, gjafabréf og skýrslur, frá fyrstu hugmynd að herferð í loftinu.

Leikirnir.

LEIKIRNIR Í KLICK PLAY

Nýr gluggi á hverjum degi, hver með sínu efni og möguleika á vinningi. Fólk kemur aftur allan desember.

Einn snúningur og niðurstaðan strax. Hentar vel á opnunum, viðburðum og í verslunum.

Sprengdu blöðrurnar í kapp við tímann. Vinningar leynast í sumum þeirra.

Vörur fyrirtækisins detta niður og leikmaðurinn grípur þær með körfu.

Skoraðu framhjá markmanninum. Fyrir íþróttafélög og styrktaraðila.

BÓKA KYNNINGU
Leikurinn spilar sig sjálfur KLICK PLAY

Svona virkar þetta.

Við sjáum um allt. Þú segir okkur hvað þú vilt ná fram og við skilum leik sem er tilbúinn í loftið.

01 Veljum leik saman

Jóladagatal, lukkuhjól, blöðrusprengja eða eitthvað alveg nýtt. Við veljum leik, vinninga og tímabil út frá því sem þú vilt ná fram.

02 Í útliti fyrirtækisins

Litir, merki, letur, myndir og textar fyrirtækisins. Leikurinn lítur út eins og hluti af vefnum þínum.

03 Í loftið

Á vefnum þínum, sem hlekkur á samfélagsmiðlum eða QR-kóði í verslun. Þátttakendur fara beint á póstlistann og vinningshafar fá gjafabréf með QR-kóða.

04 Niðurstöður

Þú sérð áhorf, skráningar og vinninga á meðan herferðin stendur, og færð skýrslu og þátttakendalista þegar henni lýkur.

Fyrsta herferðin fyrir jól?

Viltu leik fyrir
þitt fyrirtæki?

Bókaðu stutta kynningu. Við sýnum þér leikina, förum yfir hugmyndir og gefum þér tilboð.