Duda eða WordPress
Hvor lausnin hentar þínu fyrirtæki?
WordPress er öflugt og sveigjanlegt vefumsjónarkerfi. Samt sjáum við hjá Klick sífellt fleiri fyrirtæki færa WordPress-vefi sína yfir í önnur CMS kerfin eins og Duda.
Ástæðan er sjaldnast sú að WordPress geti ekki leyst verkefnið. Oftar snýst breytingin um einfaldari rekstur, minna viðhald og meiri stjórn á daglegum breytingum.
Spurningin er því ekki bara hvort kerfið geti byggt góðan vef. Heldur líka: Hversu auðvelt verður að reka vefinn eftir að hann fer í loftið?
Duda og WordPress í stuttu máli
Hvað er hægt að gera í Duda?
Duda hentar sérstaklega vel fyrir fyrirtæki sem vilja faglegan vef sem er auðvelt að uppfæra og þróa áfram.
Klick hefur unnið að vefverkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir úr fjölbreyttum atvinnugreinum, meðal annars ferðaþjónustu, menntun, heilbrigðisþjónustu, félagasamtök, opinbera geirann og skapandi greinar.
Þarfirnar eru því sjaldnast þær sömu.
Í Duda er meðal annars hægt að byggja:
- Fyrirtækjavefi og lendingarsíður.
- Blogg, eyðublöð og bókunarferli.
- Vefverslanir og tengingar við önnur kerfi.
- Síður fyrir þjónustur, starfsfólk og staðsetningar.
- Lifandi gagnasíður og sérsniðnar lausnir.
- Vefi sem starfsfólk getur auðveldlega uppfært sjálft.
Sum verkefni eru einföld og skýr. Önnur kalla á flóknari útfærslur, óvenjulegar tengingar eða nýja nálgun. Þar nýtist lausnamiðað eðli teymisins okkar og reynsla af því að aðlaga Duda að ólíkum þörfum.
Sem Duda Partner erum við í nánu samstarfi við teymið hjá Duda. Þegar við höfum rekist á áskoranir sem ekki er hægt að leysa með hefðbundnum hætti höfum við oft getað unnið með þeim að lausn. Viðskiptavinurinn fær því ekki aðeins aðgang að einföldum vefumsjónarvettvangi, heldur teymi sem þekkir möguleika kerfisins og veit hvernig hægt er að teygja þá lengra þegar verkefnið krefst þess.
Samhliða þessu er hægt að veita starfsfólki mismunandi aðgang. Sumir geta til dæmis breytt texta og myndum á meðan Klick heldur utan um hönnun og flóknari útfærslur.
Þannig fær fyrirtækið meiri stjórn á daglegum rekstri vefsins, með sérfræðinga sér við hlið þegar þarfirnar verða flóknari.
Ný verkfæri skapa fleiri möguleika: AI sýnileiki
Duda hefur á undanförnum misserum bætt við verkfærum sem gera okkur kleift að þróa sérhæfðari lausnir og vinna markvissar með sýnileika fyrirtækja. AI Visibility hjálpar fyrirtækjum að sjá hvort og hvernig vörumerkið þeirra birtist í svörum frá gervigreindarleitarvélum á borð við ChatGPT og Google AI Overviews.
Tólið getur meðal annars sýnt hversu oft fyrirtækið er nefnt, hvernig það stendur gagnvart samkeppnisaðilum og hvaða heimildir gervigreindin notar í svörum sínum. Það bendir jafnframt á tækifæri til að bæta efni og tæknilega uppsetningu vefsins.
Styrkleiki Duda er að mælingar og ýmis verkfæri til úrbóta eru aðgengileg á einum stað. Það gerir Klick kleift að fylgjast með þróuninni, finna tækifæri og vinna markvisst að auknum sýnileika.


Einfaldara viðhald getur skipt miklu
WordPress sjálft er almennt vel viðhaldið. Áskorunin liggur oft í öllu sem bætist við vefinn með tímanum: þemum, viðbótum, hýsingu og sérlausnum frá mismunandi aðilum.
Rannsókn sem kynnt var á NDSS 2025 sýndi að meira en helmingur þeirra vefumsjónarkerfa sem skoðuð voru var ekki með nýjustu öryggisuppfærslur. Meðal ástæðna voru kostnaður, ótti við að uppfærslur gætu raskað virkni og óskýr ábyrgð á rekstri vefsins.
Þetta þekkjum við vel. Vefur getur virkað vel í byrjun en orðið flóknari í rekstri eftir því sem viðbótum og sérlausnum fjölgar.
Í Duda er stærri hluti rekstrarins á einum stað. Duda sér um vettvanginn, hýsingu og uppfærslur á grunnkerfinu. Það gerir lausnina ekki áhættulausa, en getur gert reksturinn einfaldari og fyrirsjáanlegri.
Hraði og upplifun notenda
Gögn frá HTTP Archive sýna einnig mun á frammistöðu kerfanna. Árið 2025 stóðust um 85% Duda-vefja öll helstu hraða- og upplifunarviðmið Google í farsímum. Hjá WordPress var hlutfallið um 45%. Sjá Web Almanac 2025.
Þetta þýðir ekki að allir Duda-vefir séu hraðir eða að WordPress-vefir séu hægir. Vel smíðaður WordPress-vefur getur skilað frábærum árangri.
Gögnin benda hins vegar til þess að stýrður vettvangur eins og Duda geti skilað jafnari niðurstöðum. Hraði WordPress-vefja ræðst meira af vali á hýsingu, þema, viðbótum og því hvernig vefurinn er byggður.
Flutningur er tækifæri til að bæta vefinn
Þegar Klick færir WordPress-vef yfir í Duda flytjum við ekki bara texta og myndir á milli kerfa.
Við skoðum um leið:
- Hvort uppbygging vefsins sé skýr.
- Hvort gestir finni auðveldlega það sem þeir leita að.
- Hvort leiðin að fyrirspurn, bókun eða kaupum sé nógu einföld.
- Hvort vefurinn virki vel í síma.
- Hvort starfsfólk geti auðveldlega haldið efninu uppfærðu.
- Hvort mælingar og tengingar við markaðsstarf séu rétt uppsettar.
Flutningurinn verður þannig tækifæri til að einfalda reksturinn, bæta upplifun notenda og láta vefinn vinna betur með markaðsstarfinu.

Af hverju Klick?
Klick er vottaður Duda Partner og hefur unnið náið með Duda að ráðgjöf og fræðslu. Teymið hefur tekið þátt í vefnámskeiðum Duda og Stefán Andrésson, Head of Web Design og partner hjá Klick, er meðal fyrirlesara á DudaCon 2026.
Sú reynsla hjálpar okkur að sjá bæði möguleika og takmarkanir kerfisins og meta hvenær Duda er rétta lausnin.
Ertu með WordPress-vef sem er orðinn erfiður í viðhaldi eða uppfærslu? Hafðu samband og við skoðum hvort skynsamlegra sé að bæta núverandi vef eða færa hann yfir í Duda.
Umsögn viðskiptavinar
„Við fengum gott utanumhald hjá Klick. Ráðgjöf var til fyrirmyndar en einnig var hlustað á okkar óskir og fundin leið sem hentaði vel.”
Halldóra Aðalheiður Ólafsdóttir
Skátarnir
Client Feedback
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn

