Sterk stafræn upplifun fyrir
fyrirtæki í ferðaþjónustu
Við hjálpum ferðaþjónustufyrirtækjum að byggja upp stafræna upplifun sem nær athygli og eykur beina sölu í gegnum vefinn.

Vefsíður og markaðslausnir
fyrir ferðaþjónustu sem vilja auka beina sölu
Við sérhæfum okkur í að þróa og byggja stafrænar lausnir sem styðja við vöxt og daglegan rekstur fyrirtækja. Við hönnum notendavænar og faglega útfærðar vefsíður, setjum upp netverslanir og þróum sérsniðnar lausnir sem einfalda ferla og bæta upplifun notenda.
Okkar hlutverk er að hjálpa fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum að blómstra á netinu. Samstarf við Klick færir fyrirtækinu hraðari vöxt og aukna velgegni í stafræna heiminum.

Verkefnin okkar
Við höfum unnið með fjölbreyttum fyrirtækjum í ferðaþjónustu og hjálpað þeim að styrkja ímynd sína, bæta upplifun notenda og auka bókanir. Við hjálpum þér að ná athygli, skapa traust og auka bókanir.
Earth Lagoon
Vefsíða byggð frá grunni fyrir nýtt vörumerki
Earth Lagoon Mývatn er eitt þekktasta náttúrubað landsins sem hefur nýlega farið í gegnum heildstæða endurmótun á vörumerki. Markmiðið var að byggja upp nýja vefsíðu frá grunni sem endurspeglar nýja ímynd staðarins á skýran og faglegan hátt, á sama tíma og hún er einföld í notkun og auðveld í umsjón.
Vala Adventure
Vörumerki og stafrænn sýnileiki byggður frá grunni
Vala Adventure er nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á sérvaldar og persónulegar upplifanir fyrir erlenda ferðamenn. Sem nýr aðili á samkeppnismarkaði var lykilatriði að byggja upp skýrt og faglegt vörumerki sem miðlar gæðum, trausti og eftirminnilegri upplifun.
Torfhús
Stafræn upplifun sem endurspeglar vörumerkið
Torfhús Retreat leitaði til Klick með það markmið að skapa stafræna upplifun sem endurspeglar gæði og sérstöðu staðarins. Vefsíðan þurfti að miðla vandaðari upplifun á sama tíma og hún styddi við bókanir í gegnum vefinn.
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!”
Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
Earth Lagoon
“Við erum ekki bara ánægð með vefsíðuna okkar, heldur hefur samstarfið leitt af sér ný og spennandi verkefni sem ekki voru á teikniborðinu. Mikill skilningur fyrir fjárhagslegri og tímalegri getu og því mætt að fullu. Fyrir vikið munum við leita áfram til Klick með okkar framtíðar verkefni.”
Andri Ómarsson
Glassriver
“The Klick team is incredible to work with across all aspects of website development: design, content and execution. Very happy with the results, significant value for money and would eagerly recommend to all.”
Mike McAra
Reach /SCV
+400
Verkefni
Frá stofnum höfum við skilað af okkur yfir 400 verkefnum.
20+
Ára reynsla
Sérfræðingar Klick hafa yfir 20 ára reynslu í stafrænnni markaðssetningu og vefsíðuhönnun.
Reynsla sem skilar
árangri
Við höfum unnið að yfir 400 vefsíðuverkefnum fyrir fjölbreyttan hóp fyrirtækja, bæði hér á landi og erlendis. Sem vottaðir samstarfsaðilar Duda, Klaviyo og Mailchimp nýtum við okkur öflugar lausnir við vefhönnun og markaðssetningu.
Svona virkar ferlið
Við vinnum eftir skýru og skipulögðu ferli með opnu samtali í gegnum allt verkefnið. Hjá Klick færðu ekki aðeins stafræna lausn, heldur samstarf sem byggir á reynslu, skýrri sýn og markmiðum sem styðja við raunverulegan árangur.
SKREF 1
Nálgun, markmið og þarfagreining
Við leggjum áherslu á að skilja hver markmiðin eru, hver viðskiptavinurinn er og hvaða árangri hann vill að veflausnin skili.
Við setjum fram raunhæfar væntingar með skýrri verkáætlun þar sem áherslan er á góða notendaupplifun og árangur fyrirtækisins.
SKREF 2
Hönnun & tæknileg uppbygging
Við hönnum og byggjum lausnir þar sem notendaupplifun, flæði og virkni vinna saman. Áhersla er lögð á skýra framsetningu, auðvelda notkun og lausnir sem styðja við markmið fyrirtækisins.
SKREF 3
Efni, virkni & samþættingar
Við aðstoðum við uppbyggingu og aðlögun efnis, hvort sem um ræðir texta, myndefni eða virkni. Þar sem við á þróum við sérsniðnar lausnir og samþættingar sem styðja við ferla, sölu eða þjónustu.
Markmiðið er að lausnin vinni fyrir fyrirtækið, ekki öfugt.
SKREF 4
Uppsetning, vöktun & áframhaldandi þróun
Við tökum lausnina formlega í notkun með fullri tæknilegri yfirferð, mælingum og rekjanleika. Eftir uppsetningu fylgjumst við með frammistöðu og þróum lausnina áfram í takt við þarfir fyrirtækisins.
Klick vinnur sem langtímasamstarfsaðili með áherslu á stöðugan árangur og vöxt.


Vefsíður sem breyta
áhuga í bókanir
Vefsíðurgerð
Vefsíðan er oft fyrsti snertipunktur ferðalangsins við fyrirtækið þitt og þar gerist ákvörðunin. Við hönnum og byggjum vefsíður sem sýna upplifunina á skýran og aðlaðandi hátt og leiða notendur frá innblæstri yfir í bókun. Allt er hugsað út frá hraða, einfaldleika og því að síðan virki fullkomlega á öllum tækjum, með tengingum við bókunarkerfi og mælingar sem styðja við vöxt.
Efni sem fær fólk til að
velja þitt fyrirtæki
Framleiðsla
Ferðaþjónusta selst í gegnum tilfinningu. Rétt myndefni og framsetning geta skipt sköpum þegar fólk er að bera saman valkosti og taka ákvörðun. Við vinnum með þér að því að skapa efni sem fangar athygli, miðlar upplifuninni á sannfærandi hátt og styður við vörumerkið þitt. Hvort sem um er að ræða ljósmyndir, myndbönd eða grafíska framsetningu er markmiðið alltaf að láta efnið vinna með þér,
bæði á vefsíðunni og í markaðssetningu.
Við hjálpum þér að ná
athygli, skapa traust & auka bókanir


Markaðssetning
Það skiptir ekki máli hversu góð vefsíðan eða efnið er ef rétti markhópurinn sér það ekki. Við setjum upp og keyrum stafræna markaðssetningu sem nær til ferðalanga á réttum tíma og leiðir þá áfram í gegnum ferlið, frá fyrstu snertingu yfir í bókun. Með samspili auglýsinga, efnis og gagna tryggjum við að markaðssetningin skili raunverulegum árangri og styðji við vöxt til lengri tíma.
Kostaðar auglýsingar
Við setjum upp og keyrum auglýsingar á Google, Meta, TikTok og öðrum miðlum með það að markmiði að ná til fólks þegar það er að leita, skoða og taka ákvörðun. Með skýru samspili milli efnis, markhópa og skilaboða tryggjum við að herferðirnar skili raunverulegum áhuga og fleiri bókunumm, ekki bara sýnileika.
SEO
Við vinnum markvisst að því að byggja upp náttúrulegan sýnileika þannig að fyrirtækið þitt birtist þegar ferðalangar eru að leita að upplifunum, stöðum og þjónustu. Með réttri uppbyggingu á vefsíðu, efnis og tæknilegri uppsetningu hjálpum við þér að laða að rétta traffík og styrkja stöðu þína til lengri tíma.
Tracking & skýrslugerð
Við setjum upp traustar mælingar og rekjum hegðun notenda yfir alla snertipunkta til að sjá hvað virkar og hvað má bæta. Með skýrri skýrslugerð og reglulegri greiningu nýtum við gögnin til að fínstilla herferðir, bæta árangur og auka beina sölu, með fullri yfirsýn yfir það sem skiptir máli.
Ánægðir viðskiptavinir
Árangursrík verkefni
Við hjá Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick vegna hönnunar og uppsetningar á nýrri heimasíðu og ferlið gekk afar vel frá upphafi til enda. Teymið var faglegt, liðlegt og vann hratt úr öllum okkar athugasemdum. Útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Við mælum hiklaust með Klick fyrir þá sem vilja vandaða og persónulega þjónustu.
Earth Lagoon Mývatn
“Við erum ekki bara ánægð með vefsíðuna okkar, heldur hefur samstarfið leitt af sér ný og spennandi verkefni sem ekki voru á teikniborðinu. Mikill skilningur fyrir fjárhagslegri og tímalegri getu og því mætt að fullu. Fyrir vikið munum við leita áfram til Klick með okkar framtíðar verkefni.”
Glassriver
“The Klick team is incredible to work with across all aspects of website development: design, content and execution. Very happy with the results, significant value for money and would eagerly recommend to all.”
Reach
Viðskiptavinir okkar
Við vinnum með fjölbreyttum hópi fyrirtækja, allt frá sprotum til rótgróinna fyrirtækja. Markmiðið er ávallt það sama: að byggja stafrænar lausnir sem virka í raun, styðja við rekstur og skapa grundvöll fyrir vöxt.
This is the text area for this paragraph. To change it, simply click and start typing. Once you've added your content, you can customize its design by using different colors, fonts, font sizes and bullets.
Our story
This is a paragraph to describe your story
Hjá Klick sérhæfum við okkur í hönnun og uppsetningu á netverslunum og stafrænum lausnum þar sem áherslan er á skýra uppbyggingu, notendavænt viðmót og lausnir sem styðja við vöxt fyrirtækja.
Við búum jafnframt yfir víðtækri reynslu í stafrænni markaðssetningu og vitum hvernig veflausnir þurfa að vera byggðar til að styðja við sýnileika, mælanlegan árangur og langtíma þróun.
B2B lausnir
Sölumannakerfi
Með sölumannakerfinu okkar geta sölumenn unnið markvisst og selt á einfaldan og skilvirkan hátt, hvort sem þeir eru á skrifstofu eða á ferðinni. Kerfið heldur utan um viðskiptasögu, tilboð, pantanir og samskipti á einum stað og tryggir að ekkert falli á milli.
Lausnin er hönnuð til að styðja við aukna yfirsýn, hraðari afgreiðslu og betri þjónustu við viðskiptavini, sem leiðir til aukinnar sölu og sterkari tengsla.
B2B lausnir
Verkbókhald
Segðu bless við ringulreið í verkefnastjórnun. Með verkbókhaldskerfinu okkar færðu skýra og rauntímayfirsýn yfir tíma, kostnað, framvindu og afköst verkefna, allt á einum stað.
Kerfið auðveldar áætlanagerð, utanumhald og uppgjör, dregur úr handavinnu og hjálpar stjórnendum að taka upplýstar ákvarðanir byggðar á raunverulegum gögnum.
B2B lausnir
Tímabókunarkerfi
Tryggðu að viðskiptavinir finni alltaf hentugan tíma án óþarfa samskipta fram og til baka. Tímabókunarkerfið okkar einfaldar bókunarferlið, sendir sjálfvirkar staðfestingar og minnkar líkur á forföllum.
Lausnin er aðlöguð að þínum rekstri og hægt er að samþætta hana við greiðslulausnir, dagatöl og önnur kerfi, fyrir betri þjónustu og skilvirkari daglegan rekstur.
B2B lausnir
Við bjóðum upp á sérhannaðar B2B lausnir sem einfalda samskipti og viðskipti milli fyrirtækja. Hvort sem um er að ræða sérverð, notendastýringar, pantanakerfi eða samþættingar við innri kerfi, þá er lausnin byggð með skilvirkni og skalanleika í huga.
Markmiðið er að einfalda ferla, draga úr mistökum og styrkja samstörf, með kerfi sem styður við vöxt til lengri tíma.
Stílhreinar & notendavænar vefsíður
Sérfræðingar Klick sérhæfa sig í vefsíðugerð þar sem áherslan er í senn á fallegt yfirbragð og notendavæna framsetningu sem auðvelt er að viðhalda.
Klick veitir alhliða þjónustu, allt frá að uppsetningu á heildarútliti og framleiðslu á efni í samræmi við ásýnd fyrirtækisins að stuðningi við stafræna markaðssetningu á netinu.
Klick vefsíður
Einföld vefumsjón
Minni kostnaður
Alhliða stuðningur
Aðstoð við efnissköpun
Lenda ofar í leitarniðurstöðum
Áhersla á stafræna markaðssetningu
Uppsetning og umsjón með
netverslunum
Hjá Klick sérhæfum við okkur í hönnun og uppsetningu á netverslunum og stafrænum lausnum þar sem áherslan er á skýra uppbyggingu, notendavænt viðmót og lausnir sem styðja við vöxt fyrirtækja.
Við búum jafnframt yfir víðtækri reynslu í stafrænni markaðssetningu og vitum hvernig veflausnir þurfa að vera byggðar til að styðja við sýnileika, mælanlegan árangur og langtíma þróun.
Klick netverslanir
Heildarlausn í uppsetningu netverslana
Samþætt markaðs- og gagnainnsýn
Öruggt og áreiðanlegt
Skalanlegar lausnir
Stuðningur og viðhald
Ítarleg þróun


























