Vala Adventure
Um viðskiptavin & markmið
Vala Adventure er nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á sérvaldar upplifanir fyrir erlenda ferðamenn sem vilja kynnast Íslandi á persónulegan og eftirminnilegan hátt. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaða þjónustu, einstaka upplifun og ferðalög sem tengja gesti við náttúru og menningu landsins.
Markhópur Vala Adventure er fyrst og fremst erlendir ferðamenn, með sérstaka áherslu á markaði í Bandaríkjunum og Kanada.
Sem nýtt fyrirtæki á samkeppnismarkaði þurfti Vala Adventure að byggja upp vörumerki og stafræna nærveru frá grunni. Mikilvægt var að skapa skýra og faglega framsetningu sem myndi höfða til erlendra ferðamanna og gefa til kynna gæði, traust og einstaka upplifun.
Vefsíðan þurfti að styðja við markaðs- og söluaðgerðir fyrirtækisins, miðla upplifuninni sem boðið er upp á og gera áhugasömum ferðalöngum auðvelt með að kynna sér ferðirnar og taka næsta skref.
Viðskiptavinur: Vala Adventure
Atvinnugrein: Ferðaþjónusta
Staðsetning: Ísland
Þjónusta

Vefhönnun

Vefþróun

Efnisuppbygging

Tracking Setup

Vafrakökur

SEO
Vörumerki
og stafrænn sýnileiki byggður frá grunni
Klick vann að uppbyggingu vörumerkis Vala Adventure í samstarfi við Sahara frá fyrstu stigum verkefnisins. Hluti af þeirri vinnu var að þróa nafn fyrirtækisins og móta grunninn að vörumerkinu, þannig að það endurspeglaði bæði upplifunina sem fyrirtækið býður upp á og alþjóðlega nálgun þess.
Í framhaldinu hannaði Klick vefsíðuna með áherslu á skýra framsetningu, sterka sjónræna upplifun og notendaflæði sem styður við sölumarkmið fyrirtækisins. Hönnunin var þróuð með erlenda ferðalanga í huga og miðar að því að skapa traust, vekja áhuga og gera gestum auðvelt að kynna sér ferðirnar.
Samhliða þróun vefsíðunnar framleiddi Sahara markaðsefni í formi ljósmynda og myndbanda sem styðja við vörumerkið og miðla upplifuninni sem Vala Adventure býður upp á. Að lokinni uppsetningu tók Sahara einnig við umsjón með stafrænum herferðum til að kynna fyrirtækið og ná til markhópsins á alþjóðlegum mörkuðum.
Niðurstaðan er skýrt og traustvekjandi vörumerki ásamt vefsíðu sem styður við markaðs- og sölustarf fyrirtækisins. Framsetningin endurspeglar upplifunina sem Vala Adventure býður upp á og hjálpar ferðalöngum að tengjast hugmyndinni um ferðalagið áður en það hefst.
Með samspili vörumerkis, vefsíðu, markaðsefnis og stafrænnar markaðssetningar hefur Vala Adventure fengið sterkan stafrænan grunn til að byggja upp sýnileika og ná til ferðalanga á lykilmörkuðum.
Umsögn viðskiptavinar
„Við fengum gott utanumhald hjá Klick. Ráðgjöf var til fyrirmyndar en einnig var hlustað á okkar óskir og fundin leið sem hentaði vel.”
Halldóra Aðalheiður Ólafsdóttir
Skátarnir
Client Feedback
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn










