Torfhús Retreat
Um viðskiptavin & markmið
Torfhús Retreat er lúxusgististaður á Suðurlandi þar sem íslensk náttúra, arkitektúr og rólegt andrúmsloft mynda einstaka heild. Hugmyndafræðin byggir á því að skapa persónulega og vandaða upplifun fyrir gesti sem vilja upplifa Ísland á einstakan hátt. Staðurinn sækir innblástur í hefðbundna íslenska torfbæi, en sameinar þá nálgun við nútímalega hönnun og hágæða þjónustu.
Torfhús Retreat leitaði til Klickmeð það fyrir augum að skapa stafræna upplifun sem endurspeglar gæði og sérstöðu staðarins. Vefsíðan þurfti að miðla vandaðri ásýnd á sama tíma og hún styddi við bókanir í gegnum vefinn.
Mikilvægt var að tryggja að ferðalag notandans væri skýrt og samfellt frá fyrstu snertingu, hvort sem hún kæmi í gegnum auglýsingar, leit eða aðrar markaðsaðgerðir, og allt þar til gestur hefur lokið bókun. Markmiðið var því ekki aðeins að hanna fallega vefsíðu heldur að byggja upp stafrænan grunn sem styður við heildstæða markaðsnálgun.
Viðskiptavinur: Torfhús Retreat
Atvinnugrein: Ferðaþjónustufyrirtæki
Staðsetning: Ísland
Þjónusta

Vefhönnun

Vefþróun

Framleiðsla

Tracking uppsetning

Vafrakökur

SEO
Stafræn upplifun sem endurspeglar vörumerkið
Klick sá um hönnun og uppbyggingu vefsíðunnar með áherslu á notendaupplifun, einfalt notendaflæði og sterka sjónræna framsetningu sem endurspeglar vörumerkið. Við nálguðumst verkefnið með það að leiðarljósi að upplifun gesta væri samfelld í gegnum allt ferðalagið, frá fyrstu auglýsingu þar til bókun er kláruð.
Vefsíðan var hönnuð til að sýna upplifun staðarins á skýran og fallegan hátt, á sama tíma og hún styður við bókanir og auðveldar gestum að finna þær upplýsingar sem skipta máli.
Samhliða vefsíðunni vann Sahara að markaðsstarfi fyrir Torfhús Retreat, þar sem framleitt var markaðsefni í formi ljósmynda og myndbanda ásamt því að vinna með leitarvélabestun og stafræna markaðssetningu. Með þessari nálgun varð vefsíðan miðpunktur í stafrænu ferðalagi gesta.
Samstarfið hefur skilað góðum árangri. Vefsíðan gegnir í dag mikilvægu hlutverki í markaðsstarfi Torfhús Retreat og stuðlar að því að umbreyta áhuga erlendra ferðamanna í raunverulegar bókanir.
Við höfum séð stöðuga og vaxandi aukningu í sölu þar sem samspil vefsíðu, markaðsefnis og stafrænnar markaðssetningar skapar sterka og samfellda upplifun fyrir gesti.
Umsögn viðskiptavinar
„Við fengum gott utanumhald hjá Klick. Ráðgjöf var til fyrirmyndar en einnig var hlustað á okkar óskir og fundin leið sem hentaði vel.”
Halldóra Aðalheiður Ólafsdóttir
Skátarnir
Client Feedback
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn










