GR Golf
Um viðskiptavin & markmið
Golfklúbbur Reykjavíkur leitaði til Klick og þurfti að fá gerða nýja og notendavænni vefsíðu. Starfsfólk klúbbsins átti í erfiðleikum með að viðhalda gömlu síðunni sjálf, allar breytingar kröfðust tæknilegrar aðstoðar og tóku tíma. Þar að auki var gamla síðan þunglamaleg í notkun, erfitt var að finna ákveðnar upplýsingar og upplýsingaflæðið til notenda var ómarkvisst.
Markmiðið var þríþætt: að færa síðuna í kerfi sem GR getur séð um sjálft, að bæta notendaflæðið og að leggja sérstaklega áherslu á nýliðastarf og barna- og unglingastarf klúbbsins.
Viðskiptavinur: Golfklúbbur Reykjavíkur
Atvinnugrein: Íþróttasamtök
Staðsetning: Ísland
Þjónusta

Vefhönnun

Vefþróun

Efnisuppbygging

Vafrakökur

SEO
Nýr og skilvirkur vefur
fyrir GR
Nýja vefsíðan var sett upp í Duda sem gaf starfsfólki GR fulla stjórn yfir öllu efni eftir að síðan fór í loftið, án þess að þurfa tæknilega aðstoð við hverja breytingu. Samhliða setti GR upp nýtt og vandað veftré og Klick sá til þess að notendaflæðið virki vel í gegnum alla síðuna.
Hönnunin byggir á stílhreinu og nútímalegu útliti með sérsniðinni grafík í bakgrunni og víðar á síðunni, sem gefur henni faglegt og samræmt yfirbragð.
Leikfyrirkomulag á Korpuvelli
Sérstakt app er tengt við dagskrá Korpúlfsstaðavallar sem sýnir leikfyrirkomulagið á næstu þremur dögum og uppfærist það sjálfkrafa. Golfspilarar geta alltaf treyst því að upplýsingarnar séu réttar án þess að nokkur þurfi að uppfæra þær handvirkt.
Veðurapp
Veðurapp er tengt við veðurstöð á hverjum golfvelli fyrir sig og gefur notendum nákvæmar og staðbundnar veðurupplýsingar beint í gegnum vefsíðuna.
Tab-kerfi fyrir golfvelli
Sérhannað tab-kerfi sem sýnir allar holur, upplýsingar um hvern völl og „fly-by“ myndbönd – allt á einum stað og auðvelt í notkun.
Auglýsingaborði
Stýranlegur auglýsingaborði í gegnum Duda Collection, sem birtist á völdum undirsíðum, auðveldar GR að stjórna honum og uppfæra án tæknilegrar aðstoðar.
Collections
Klick studdist að miklu leyti við Collections í Duda til að einfalda vinnuna fyrir GR þegar þau þurfa að skipta um myndir, uppfæra starfsfólk eða breyta einhverju í upplýsingum um golfvellina.
Árangur
GR hefur nú fulla stjórn á sinni eigin vefsíðu og getur uppfært allt efni á einfaldan hátt. Notendur síðunnar eru fljótari að finna það sem þeir leita að, hvort sem það er leikfyrirkomulag, veðurspá eða upplýsingar um golfvöllinn. Áherslan á nýliða og barna- og unglingastarf endurspeglast í skipulagi og hönnun síðunnar og auðveldar nýjum meðlimum að kynna sér það sem klúbburinn hefur upp á að bjóða.
Umsögn viðskiptavinar
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!”
Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
Earth Lagoon Mývatn
Client Feedback
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn










