Efling

Um viðskiptavin & markmið

Efling leitaði til Klick með það að markmiði að færa vefsíðuna í nýjan búning sem samræmist uppfærðri ásýnd félagsins. Mikil vinna hafði þegar farið í endurnýjun á vörumerki, ásamt nýju útliti á skrifstofu og í kynningarefni, og því var mikilvægt að vefsíðan fylgdi þeirri þróun og myndaði heildstæða upplifun.


Samhliða því stóð félagið frammi fyrir skýru áskorun: félagsmenn áttu oft erfitt með að finna upplýsingar á síðunni og leituðu því frekar í að hringja. Þetta skapaði aukið álag á starfsfólk og hægði á þjónustu.


Markmiðið var því tvíþætt: Að samræma stafræna ásýnd Eflingar og að bæta aðgengi að upplýsingum og draga úr álagi á þjónustuver

Viðskiptavinur: Efling

Atvinnugrein: Stéttarfélag

Staðsetning: Ísland

Þjónusta

  Vefhönnun

  Vefþróun

  Efnisuppbygging

  Tracking Setup

  Vafrakökur

Nýr og notendamiðaður

vefur fyrir Eflingu

Til að ná þessum markmiðum var vefsíðan endurhugsuð frá grunni með áherslu á einfaldleika og skýrleika.


Síðan var sett upp í Duda, sem gerir starfsfólki kleift að viðhalda og uppfæra efni á einfaldan hátt án tæknilegrar sérþekkingar. Þetta leysti fyrri áskoranir þar sem breytingar á efni voru flóknar og tímafrekar. Kjarninn í lausninni fólst hins vegar í því að skilja hegðun notenda.


Klick lagði upp með einfaldar spurningar: Hvað vita félagsmenn og hvar byrja þeir leitina? Svarið var skýrt – félagsmenn vita hjá hvaða fyrirtæki þeir starfa. Út frá þeirri innsýn þróaði Klick sérsniðna lausn sem byggir á einfaldri, notendamiðaðri hugsun þar sem upphafspunktur leitar er alltaf nálægt notandanum sjálfum. Lausnin miðar að því að einfalda upplifun, stytta leiðina að upplýsingum og tryggja að notendur finni það sem þeir leita að á sem skilvirkastan hátt.

Kjarasamningaleitarvél

Leitarvél sem gerir félagsmönnum kleift að slá inn nafn eða kennitölu fyrirtækis og fá strax fram allar viðeigandi upplýsingar um sín kjör, laun og réttindi.


Upplýsingarnar eru settar fram á skýran og hnitmiðaðan hátt, án óþarfa truflana eða efnis sem á ekki við. Þetta einfaldar upplifunina og styttir leið notenda að réttu svari. Lausnin var útfærð með API-tengingu við gagnagrunn Eflingar, sem tryggir að gögn séu bæði uppfærð og aðgengileg í rauntíma.


Viðburðadagatal

Klick setti upp nýtt og sveigjanlegt viðburðadagatal þar sem notendur geta flokkað viðburði eftir tegund og dagsetningu. Þetta gerir yfirsýn skýrari og auðveldar notendum að finna viðeigandi viðburði.


Orlofshúsakerfi

Einnig þróaði Klick nýtt birtingarkerfi fyrir orlofshús Eflingar. Þar geta notendur flokkað hús eftir landshlutum og skoðað nánari upplýsingar um hvert hús fyrir sig á einfaldan og aðgengilegan hátt.

Hlý og aðgengileg hönnun sem styður upplifun

Hönnun vefsins byggir á mjúkum og róandi tónum sem styðja við læsileika og draga úr álagi við lestur, sem er sérstaklega mikilvægt þar sem efnið er umfangsmikið og upplýsingadrifið.


Litapallettan sækir innblástur í myndskreytingar eftir Snorra Eldjárn, sem gefa vefnum persónulegan og hlýlegan karakter. Myndefnið er nýtt markvisst til að brjóta upp texta og gera upplifunina aðgengilegri og mannlegri.

Umsögn viðskiptavinar

“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!”


Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir

Earth Lagoon Mývatn

Client Feedback

“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn