Heyrnartækni

Um viðskiptavin & markmið

Heyrnartækni er sérhæfð heyrnarþjónusta á Íslandi sem leggur áherslu á faglegar heyrnarmælingar og fullkomnar lausnir á sviði heyrnartækja. Með sterka áherslu á persónulega þjónustu og langtíma eftirfylgni styður fyrirtækið við viðskiptavini sína í gegnum allt þeirra heyrnarferðalag.


Heyrnartækni leitaði til Klick með það verkefni að hanna nútímalega og notendavæna vefsíðu sem endurspeglar sérfræðiþekkingu og trausta ímynd fyrirtækisins. Vefsíðan skyldi hönnuð með það að markmiði að skapa vettvang fyrir skýr samskipti við viðskiptavini, gera allar upplýsingar aðgengilegar og byggja upp ásýnd Heyrnartækni á stafrænum vettvangi til lengri tíma.

Viðskiptavinur: Heyrnartækni

Atvinnugrein: Heyrnarþjónusta

Staðsetning: Ísland

Þjónusta

  Vefhönnun

  Vefþróun

  Efnisuppbygging

  Tracking Setup

  Vafrakökur

  SEO

This is paragraph text

This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, colour, size, format and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.



This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, colour, size, format and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.


This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, colour, size, format and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.

Nýr og skýr vefur

fyrir Heyrnartækni

Markmið Klick í þessu verkefni var að skapa traustan stafrænan grunn sem endurspeglar þá fagmennsku, hlýju og traust sem Heyrnartækni hefur byggt upp í gegnum árin. Vefsíðan þurfti að vera skýr og aðgengileg, með einfaldri og leiðandi upplifun þannig að notendur finni fljótt það sem þeir leita að, hvort sem það eru upplýsingar um heyrnartæki, heyrnarmælingar, þjónustu eða ráðgjöf.


Á sama tíma var lögð áhersla á sterkar tæknilegar undirstöður. Uppbygging vefsíðunnar var endurskipulögð með hliðsjón af leitarvélabestun, skýrri uppsetningu á síðum og hraðri virkni á öllum tækjum. Vefsíðan var hönnuð með „mobile-first“ nálgun svo hún nýtist jafn vel þeim sem eru á ferðinni og þeim sem skoða hann heima við tölvuskjáinn. Einnig voru innleidd nútímaleg mælitól og uppfærð kökustýring sem styðja við áframhaldandi markaðsstarf og gagnadrifnar ákvarðanir.

 Á bak við tjöldin var sett upp sveigjanlegt og notendavænt vefumsjónarkerfi með endurnýtanlegum einingum og skýrum sniðmátum. Það tryggir að teymið hjá Heyrnartækni getur auðveldlega uppfært efni, bætt við nýjum síðum og þróað vefinn áfram í takt við vöxt fyrirtækisins.

 

Útkoman er nútímalegur og traustvekjandi vefur sem endurspeglar gæði þjónustunnar. Efnið er betur skipulagt en á eldri vefsíðu, upplýsingaflæðið er skýrara og leið notandans í gegnum síðuna er einfaldari. Gestir geta nú á auðveldan hátt kynnt sér þjónustuna, bókað tíma og fengið skýra mynd af því hvað Heyrnartækni hefur að bjóða.


Með nýju vefsíðunni hefur Heyrnartækni þannig fengið glænýja og sterka stafræna ásýnd sem styður við vöxt til framtíðar, eykur sýnileika fyrir leitarvélar og leggur grunn að áframhaldandi þróun. Vefsíðan býr yfir faglegu og hlýlegu fyrsta viðmóti sem eflir traust og auðveldar fólki að taka næsta skref í áttina að betri heyrn.

Umsögn viðskiptavinar

„Frábært að vinna með Klick við hönnun og uppsetningu á nýju heimasíðunni okkar.”


Anna Linda Guðmundsdóttir

Heyrnartækni

Client Feedback

“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn