Verkefnalistinn

Um viðskiptavin & markmið

Borgarstjórn Reykjavíkur leitaði til Klick með skýrt markmið: að gera verkefnalista stjórnarsáttmálans aðgengilegan og gagnsæjan fyrir almenning. Þörfin var fyrir lifandi veflausn sem sýnir stöðu verkefna yfir tíma og gefur borgarbúum skýra mynd af framvindu.


Markmiðið var að skapa lausn þar sem stjórnarsáttmáli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar yrði ekki bara skjal til lestrar — heldur lifandi og uppfæranlegt tæki sem borgarbúar geta fylgst með.

Viðskiptavinur: Borgarstjórn Reykjavíkur

Atvinnugrein: Sveitarstjórnarmál

Staðsetning: Ísland

Þjónusta

Svart og grátt abstrakt lógó með sveigðri svörtu formi og gráum láréttum súlum

  Vefhönnun

Svart og grátt abstrakt lógó með sveigðri svörtu formi og gráum láréttum súlum

  Vefþróun

Svart og grátt abstrakt lógó með sveigðri svörtu formi og gráum láréttum súlum

  Efnisuppbygging

Svart og grátt abstrakt lógó með sveigðri svörtu formi og gráum láréttum súlum

  Tracking Setup

Svart og grátt abstrakt lógó með sveigðri svörtu formi og gráum láréttum súlum

  Vafrakökur

Svart og grátt abstrakt lógó með sveigðri svörtu formi og gráum láréttum súlum

  SEO

Lifandi mælaborð fyrir borgarbúa

Til að ná þessum markmiðum hönnuðum við lendingarsíðu í Duda með lifandi mælaborði sem sýnir stöðu allra verkefna í rauntíma.

Verkefnin eru flokkuð eftir tímalínu — 100 dagar, 12 mánuðir og 4 ár — og eftir málaflokkum eins og samgöngur, húsnæði, menning og velferð.


Upphafspunkturinn var einföld spurning: Hvernig vill borgarbúi finna verkefni sem snerta hann? Svarið varð að notendamiðað síukerfi þar sem hægt er að skipta verkefnum eftir flokki, stöðu og tímalínu — og fá strax yfirsýn yfir hvað er lokið, í vinnslu eða óklárað.

Verkefnalisti

Dynamic cards tengt við collection í Duda sem uppfærist sjálfkrafa þegar borgarstjórn merkir verkefni sem kláruð.


Mælaborð

Sýnir í rauntíma hversu mörg verkefni eru kláruð, í vinnslu eða eftirstöðvar — bæði heildaryfirlit og hlutfall í hverjum flokki.


Síukerfi

Filter/toggle sem gerir notendum kleift að þrengja listann eftir málaflokkum, stöðu og tímalínu á einfaldan og skjótan hátt.


Árangur

Borgarbúar geta nú fylgst með verkefnum sem hafa áhrif á daglegt líf þeirra á einum stað. Borgarstjórn getur uppfært stöðu verkefna sjálf, án tæknilegrar aðstoðar. Lausnin skapar aukið traust og gagnsæi milli kjörinna fulltrúa og almennings.

Táknmynd fyrir svart gæsalappir á hvítum bakgrunni

Umsögn viðskiptavinar

“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!”


Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir

Earth Lagoon Mývatn

Client Feedback

“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn