VÖK Baths
Um viðskiptavin & markmið
Vök Baths leitaði til Klick með þrjú skýr markmið: að fá fulla stjórn yfir eigin heimasíðu, bæta upplifun gesta og uppfæra útlit síðunnar þannig að það endurspeglaði betur það einstaka umhverfi og upplifun sem staðurinn hefur upp á að bjóða.
Upprunalega vefsíðan þjónaði hvorki þörfum starfsfólks né gesta nægilega vel, bæði hvað varðar stjórnun efnis og framsetningu á þeirri sérstöku upplifun sem bíður gesta á staðnum.
Viðskiptavinur: Vök Baths
Atvinnugrein: Ferðaþjónusta / heilsulindir
Staðsetning: Ísland
Þjónusta

Vefhönnun

Vefþróun

Efnisuppbygging

Tracking Setup

Vafrakökur

SEO
Nútímaleg og lifandi
upplifun á netinu
Nýja heimasíðan var sett upp í Duda sem veitir starfsfólki Vök Baths fulla stjórn á efni, myndum og upplýsingum, án þess að þurfa tæknilega aðstoð. Útlitið er stílhreint og nútímalegt með einfaldri leiðarstiku sem leiðir notendur síðunnar á skjótan og skýran hátt að því sem þeir leita að, hvort sem það eru opnunartímar, verð eða aðrar upplýsingar.
Síðan er bæði íslensku og ensku til að ná til sem breiðasts markhóps, bæði heimamanna og ferðamanna.
Visitor Journey
Sérsniðinn kafli sem leiðir gesti í gegnum dvöl þeirra á staðnum, skref fyrir skref. Þetta gefur væntanlegum gestum skýra mynd af því hvað bíður þeirra og eykur þannig eftirvæntingu fyrir heimsóknina.
Progress Bar með Lagarfljótsorminum
Sérhönnuð framvindustika í Duda sem birtist þegar notandi skrollar í gegnum journey-kaflann. Stikan er hönnuð með bylgjumótífi tengt Lagarfljótsorminum og gerir upplifunina skemmtilegri, sjónrænt áhugaverðari og gagnvirkari.
Tvítyngd uppsetning
Síðan er að fullu uppfærð á íslensku og ensku í gegnum virkni í Duda sem styður mörg tungumál, það tryggir samræmda og vandaða upplifun óháð tungumáli notanda.
Einfölduð leiðsögn
Skýrar og beinar leiðir í gegnum leiðsögustiku minnka flækjustig og tryggja að gestir finni það sem þeir leita að á sem skemmstum tíma.
Árangur
Starfsfólk Vök Baths getur nú uppfært efni og viðhaldið síðunni sjálft á auðveldan hátt. Gestirnir njóta skýrari leiðsagnar, sjónrænt áhugaverðrar framsetningar og fá betri yfirsýn yfir dvöl sína á staðnum. Journey-kaflinn hefur aukið þátttöku notenda og lengt dvöl þeirra á síðunni sem endurspeglar þá sérstöku upplifun sem Vök Baths er þekkt fyrir.
Umsögn viðskiptavinar
„Við erum mjög ánægð með samstarfið við Klick.is við gerð vefsíðunnar okkar vokbaths.is! Þau voru fagleg, liðleg í öllum samskiptum, tóku vel í allar athugasemdir og ábendingar, voru fljót að bregðast við og hjálpuðu okkur að finna bestu lausnina hverju sinni. Útkoman er vefsíða sem við erum virkilega stolt af og mælum við hiklaust með þeim.“
Guðlaug Jóhannsdóttir
Vök Baths
Umsögn viðskiptavinar
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!”
Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
Earth Lagoon Mývatn
Client Feedback
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn










