Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Um viðskiptavin & markmið

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er öflugur framhaldsskóli sem býður upp á fjölmargar námsbrautir fyrir nemendur með ólíkan bakgrunn, áhugasvið og framtíðaráform. Vefsíða skólans gegnir því mikilvægu hlutverki í miðlun upplýsinga til núverandi og verðandi nemenda, forráðamanna þeirra og starfsfólks.


Skólinn leitaði til Klick með það verkefni að endurskipuleggja og endurhanna vefsíðuna þannig að auðveldara væri fyrir ólíka hópa notenda hennar að finna þær upplýsingar sem leitað er að. Helsta áskorunin fólst í umfangi vefsins og miklu magni upplýsinga, sem hafði gert notendum erfitt fyrir að átta sig á því hvar þær upplýsingar væri að finna sem leitað var að.


Mikilvægt er að vefurinn geti þjónað núverandi nemendum og forráðamönnum þeirra, en jafnframt veitt verðandi nemendum skýra yfirsýn yfir skólann, námsframboð og umsóknarferli. Auk þess þurfti vefurinn að vera bæði aðgengilegt og skilvirkt verkfæri fyrir starfsfólk skólans.

Markmiðið var því að einfalda upplýsingaflæðið, bæta leiðarkerfi vefsíðunnar og skapa nútímalega ásýnd sem endurspeglar fjölbreytileikann í starfsemi skólans.

Viðskiptavinur: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Atvinnugrein: Mennastofnun

Staðsetning: Ísland

Þjónusta

Svart og dökkgrátt abstrakt tákn sem líkist stílfærðri bogadreginni lögun

  Vefhönnun

Svart og dökkgrátt abstrakt tákn sem líkist stílfærðri bogadreginni lögun

  Vefþróun

Svart og dökkgrátt abstrakt tákn sem líkist stílfærðri bogadreginni lögun

  Efnisuppbygging

Svart og dökkgrátt abstrakt tákn sem líkist stílfærðri bogadreginni lögun

  Tracking Setup

Svart og dökkgrátt abstrakt tákn sem líkist stílfærðri bogadreginni lögun

  Vafrakökur

Svart og dökkgrátt abstrakt tákn sem líkist stílfærðri bogadreginni lögun

  SEO

Notendavænn vefur sem einfaldar hlutina

Klick sá um endurskipulagningu, hönnun og uppbyggingu nýrrar vefsíðu fyrir Fjölbrautaskólann í Breiðholti með áherslu á skýrt upplýsingaflæði og einfalt notendaviðmót.

Veftréð var endurhugsað út frá þörfum ólíkra notendahópa og efnið flokkað þannig að núverandi nemendur, forráðamenn, verðandi nemendur og starfsfólk skólans geti fundið þær upplýsingar sem leitað er að í færri skrefum.


Stór hluti verkefnisins fólst í að gera námsframboð skólans sýnilegra og aðgengilegra. Vefnum var skipt skýrar niður eftir námsbrautum og útbúnar flýtileiðir að hverri braut fyrir sig. Þannig geta notendur auðveldlega kynnt sér ólíkar námsleiðir, borið saman valkosti og átt greiða leið að þeim upplýsingum sem skipta þá mestu máli.

Samhliða endurskipulagningunni var vefurinn endurhannaður frá grunni. Ný ásýnd er einfaldari, stílhreinni og skilvirkari og endurspeglar betur fjölbreytta starfsemi skólans.


Útkoman er nútímalegur og notendavænn vefur sem gerir ólíkum notendahópum auðveldara að nálgast upplýsingar og kynnast skólanum í gegnum vefsíðuna. Skýrari uppbygging og áberandi flýtileiðir að námsbrautum stytta notendum leið að því sem leitað er að og bæta þannig upplifun þeirra af vefnum.


Nýja vefsíðan veitir Fjölbrautaskólanum í Breiðholti jafnframt sterkari stafrænan grunn til framtíðar og einfaldar alla miðlun upplýsinga um nám, þjónustu og daglegt starf í skólanum.

Táknmynd fyrir svart upphafsgæsalappa á hvítum bakgrunni

Umsögn viðskiptavinar

“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!”


Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir

Earth Lagoon Mývatn

Client Feedback

“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn