Lava Resort
Um viðskiptavin & markmið
Miðhraun – Lava Resort og Hlaðan Restaurant er fjölskyldurekið ferðaþjónustufyrirtæki á Snæfellsnesi, í um það bil 90 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Starfsemin hefur verið byggð upp á bújörð sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá því um miðja 19. öld. Á síðustu árum hefur reksturinn þróast úr hefðbundnum landbúnaði og annarri atvinnustarfsemi yfir í fjölbreytta ferðaþjónustu.
Gestum stendur til boða að gista í smáhýsum, íbúðum eða íbúðarhúsi, glæsilegur veitingastaður er á staðnum ásamt baðlóni, sánu og útivistarsvæði með húsdýrum og leikvelli. Miðhraun hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem vinsæll staður fyrir brúðkaup, námskeið, hópefli og aðra viðburði.
Fyrri vefsíðan var einföld í uppbyggingu – ein löng forsíða þar sem gestir flettu niður síðuna eða notuðu tengla til að stökkva á milli efnisflokka. Fyrir utan bókunarkerfið var lítið um aðra virkni og sífellt erfiðara varð að þróa og viðhalda vefnum eftir því sem starfsemin óx. Eigendur Miðhrauns vildu því færa vefinn yfir á kerfi sem þeir gætu séð um sjálfir, skipulagt efnið betur á aðskildum síðum og skapað vefsíðu sem endurspeglar gæði og metnað fyrirtækisins.
Viðskiptavinur: Lava Resort
Atvinnugrein: Ferðaþjónusta
Staðsetning: Ísland
Þjónusta

Vefhönnun

Vefþróun

Efnisuppbygging

SEO
Nýr vefur sem einfaldar
upplifun gesta
Nýja vefsíðan var sett upp í Duda og í stað einnar langrar forsíðu var efninu skipt niður á aðskildar undirsíður sem gera vefinn skýrari og auðveldari í notkun. Nú eru meðal annars sérstakar síður fyrir gistinguna, veitingastaðinn, útisvæðið, lónið og sánuna, áhugaverða staði í nágrenninu og ýmislegt fleira. Einnig er auðvelt að bæta við nýju efni og þróa vefinn áfram eftir því sem starfsemin vex.
Bókunarvélin var flutt óbreytt yfir á nýja vefinn þannig að gestir geta áfram bókað á einfaldan hátt. Um leið fékk vefurinn nýtt útlit og sérsmíðaðar lausnir sem gera efnið skýrara og auðvelda leiðsögn um vefinn.
Með nýja vefnum geta eigendur nú sjálfir uppfært efni, bætt við tilboðum, viðburðum og bloggfærslum án aðkomu forritara. Það gerir þeim kleift að þróa vefinn samhliða rekstrinum og halda honum ávallt uppfærðum án utanaðkomandi aðstoðar.
Helstu eiginleikar
- Efninu skipt niður á aðskildar undirsíður fyrir helstu þjónustuþætti.
- Sérsmíðaður „Hvernig getum við aðstoðað?“ valmöguleiki á forsíðu sem leiðir gesti beint að því efni sem þeir leita að.
- Sérsmíðuð lausn sem sameinar umsagnir frá Booking.com, Google og TripAdvisor á einum stað.
- Gagnvirkt kort með staðsetningarpunktum sem auðveldar gestum að skoða áhugaverða staði á Snæfellsnesi.
Umsögn viðskiptavinar
„Grænir skátar leituðu til Klick til að uppfæra heimasíðu og myndefni. Teymi Klick er liðlegt og tilbúið að mæta þeim kröfum sem við höfðum en komu um leið með ábendingar um hvað væri hægt að gera betur/öðruvísi. Samstarfið gekk einkar vel og við mælum með Klick.“
Halldóra Aðalheiður Ólafsdóttir
Grænir skátar
Umsögn viðskiptavinar
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!”
Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
Earth Lagoon Mývatn
Client Feedback
“Við í Jarðböðunum við Mývatn leituðum til Klick varðandi uppsetningu og hönnun á nýrri heimasíðu. Allt ferlið gekk ótrúlega vel frá upphafi til enda. Starfsfólkið lagði sig allt fram við að vinna síðuna með okkur, vann úr öllum okkar athugasemdum og punktum og var einstaklega liðlegt í öllu sínu verki. Verkið var unnið hratt og örugglega og útkoman er falleg, notendavæn og skilvirk heimasíða sem virkar vel á öllum tækjum. Ég mæli hiklaust með Klick fyrir alla sem vilja vandaða, örugga og persónulega þjónustu!” - Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Earth Lagoon Mývatn










